Problem F
Uppröðun
                                                                Languages
                        
                            
                                                                    en
                                                                    is
                                                            
                        
                                                                
  
      Eitt sem skipuleggjendur keppninnar þurfa að gera er að ákveða hvaða lið eiga að vera í hvaða stofu. Það eru $N$ stofur og $M$ keppendur. Stofurnar eru svipað stórar, svo það er best að keppendum sé skipt niður á stofurnar eins jafnt og mögulegt er. Til dæmis ef það eru $N=3$ stofur og $M=8$ keppendur, þá er best að setja $3$ keppendur í eina stofu, $3$ keppendur í aðra stofu, og svo síðustu $2$ keppendurna í síðustu stofuna.
Inntak
Inntakið samanstendur af tveimur línum. Á fyrri línunni er heiltalan $N$, og á seinni línunni er heiltalan $M$.
Úttak
Úttak á að innihalda $N$ línur, eina fyrir hverja stofu. Ef það eiga $k$ keppendur að vera í stofu númer $i$, þá á lína númer $i$ að innihalda $k$ eintök af tákninu *.
Útskýring á sýnidæmum
Í fyrsta sýnidæminu er $N=1$ stofa og $M=5$ keppendur. Þar sem það er bara ein stofa, þá er eru allir keppendurnir í þeirri stofu.
Annað sýnidæmið er það sama og var tekið að ofan.
Í þriðja sýnidæminu eru $N=5$ stofur og $M=33$ keppendur. Hér er best að setja $6$ keppendur í tvær af stofunum, en $7$ keppendur í hinar þrjár stofurnar. Hér sjáum við líka að röð skiptir ekki máli.
Stigagjöf
Lausnin mun verða prófuð á miserfiðum inntaksgögnum, og er gögnunum skipt í hópa eins og sýnt er í töflunni að neðan. Lausnin mun svo fá stig eftir því hvaða hópar eru leystir.
| 
           Hópur  | 
        
           Stig  | 
        
           Inntaksstærð  | 
        
           Önnur skilyrði  | 
      
| 
           1  | 
        
           20  | 
        
           $N = 1$, $M \leq 500$  | 
        |
| 
           2  | 
        
           20  | 
        
           $N = 2$, $M \leq 500$  | 
        |
| 
           3  | 
        
           30  | 
        
           $N \leq 10$, $M \leq 500$  | 
        
           Það munu vera jafn margir í öllum stofum  | 
      
| 
           4  | 
        
           30  | 
        
           $N \leq 10$, $M \leq 500$  | 
        
| Sample Input 1 | Sample Output 1 | 
|---|---|
          1 5  | 
        
          *****  | 
      
| Sample Input 2 | Sample Output 2 | 
|---|---|
          3 8  | 
        
          *** *** **  | 
      
| Sample Input 3 | Sample Output 3 | 
|---|---|
          5 33  | 
        
          ******* ******* ****** ******* ******  | 
      
| Sample Input 4 | Sample Output 4 | 
|---|---|
          4 8  | 
        
          ** ** ** **  | 
      
