Problem A
Brýr
Languages
en
is
ja
Eins og allir vita frá því í fyrra þá búa Eva og Stefán í Vestmannaeyjum. Þá hjálpaðir þú Evu að finna bestu ferðaáætlunina til að skoða allt landið með honum Stefáni á sem stystum tíma. Núna langar Evu aftur að heimsækja Egilsstaði en á ferð sinni í kringum landið þá fundu þau út að Stefán HATAR einbreiðar brýr. Hún Eva leitar því aftur til þín til að hjálpa sér að halda Stefáni í góðu skapi.
Getur þú hjálpað Evu að finna leiðina frá Vestmannaeyjum til Egilsstaða sem inniheldur sem fæstar einbreiðar brýr?
Inntak
Í fyrstu línu koma tvær heiltölur, $2 \leq n \leq 10^5$, fjöldi staða, $n-1 \leq m \leq \min {(2\cdot 10^5, n(n-1)/2)}$ fjöldi vega. Næst koma $m$ línur hver með $3$ tölum $1 \leq a, b \leq n$ og $c \in \{ 0, 1\} $ sem þýðir að það er vegur sem liggur á milli staðar $a$ og staðar $b$ og inniheldur einbreiða brú ef $c = 1$, en tvíbreiða brú ef $c=0$. Vestmannaeyjar munu alltaf vera númer $1$ og Egilsstaðir munu alltaf vera númer $n$. Þú mátt gera ráð fyrir að vegakerfi Íslands sé samhangandi: það er hægt að komast á hvern einasta stað frá hverjum einasta stað. Þú mátt einnig gera ráð fyrir að hvert par $a, b$ kemur mesta lagi einu sinni fyrir í inntakinu.
Úttak
Ein lína með minnsta fjölda einbreiðra brúa sem Stefán og Eva þurfa að fara yfir til að komast á leiðarenda.
Stigagjöf
Hópur |
Stig |
Takmarkanir |
1 |
20 |
$1 \leq n \leq 100$, $n = m$, Vegakerfi Íslands myndar eina hringrás af einbreiðum brúm ($c = 1$) |
2 |
20 |
$1 \leq n \leq 100$, allir vegir innihalda einbreiða brú ($c = 1$) |
3 |
20 |
$1 \leq n \leq 100$ |
4 |
20 |
Allir vegir innihalda einbreiða brú ($c = 1$) |
5 |
20 |
Engar frekari takmarkanir |
Sample Input 1 | Sample Output 1 |
---|---|
3 3 3 1 1 1 2 1 2 3 1 |
1 |
Sample Input 2 | Sample Output 2 |
---|---|
6 6 5 6 1 5 4 1 2 1 1 2 3 1 4 3 1 1 4 1 |
3 |
Sample Input 3 | Sample Output 3 |
---|---|
10 13 7 3 0 7 10 1 8 2 0 10 2 1 4 6 0 4 1 0 9 5 1 6 9 0 7 6 1 3 10 0 4 5 0 5 7 1 4 8 0 |
1 |